Sunday, February 20, 2011

Birthday girl!

 Toppur - Topshop / Buxur - Vero Moda / Skór - H&M / Hálsmen - Accessorize
Eina myndin sem náðist af mér allri. Þið afsakið ferskleikann. Mér til varnar var þessi mynd tekin um 4 leytið í nótt. Finnst kórónan og nælan klárlega toppa outfittið.. haha

Ég hélt uppá afmælið mitt á Prikinu í gærkvöldi. Það var æði, umvafinn öllu uppáhalds fólkinu mínu og ég hitti meira að segja nokkra lesendur. Takk þið sem gáfuð ykkur á tal við mig, æðislegt að fá að fagna afmælinu mínu með ykkur! :) Dagurinn í dag er svo búinn að fara í Yoyo deit með Beggu vinkonu, kökur og kræsingar með famelíunni og svo þynnkuafmælisbíó í kvöld með sætu stelpunum mínum. Þetta er búið að vera æðisleg helgi í alla staði og vil bara þakka öllum sem tóku þátt í henni með mér! Þið eruð æði!

Kv. Væmna afmælis pían!

6 comments:

  1. til hamingju með daginn! :)
    toppurinn er ÆÐI!
    hildur

    ReplyDelete
  2. til hamingju með daginn!

    mjög fínt afmælisdress...sérstaklega nælan ;)

    x

    ReplyDelete
  3. Ótrúlega fín! Til hamingju með daginn :)

    ReplyDelete
  4. Til hamingju með afmælið :D
    Topshop toppurinn er ótrúlega flottur á þér

    ReplyDelete
  5. Til hamingju með afmælið, rosa fín :)

    ReplyDelete