Monday, March 7, 2011

Céline fall 2011


Céline klikkar ekki frekar en hinn daginn. Haustlínan hjá Phoebe Philo er ótrúlega kvennleg og falleg. Litirnir eru mjög mikið í anda áttunda áratugarins eins og er búið að vera svo mikið um á tískupöllunum núna. Línan er rosalega klassísk og kannski á köflum svolítið dauf, en er samt sem áður mjög nútímanleg. Þetta eru flíkur sem allar konur geta klæðst. Vel gert!

♥

Sunday, March 6, 2011

Cheap thrills






Nokkrar myndir frá helginni. Rólegt föstudagskvöld og svo matarboð í gærkvöldi með stelpunum mínum. Æðisleg helgi að baki! Vona að allir hafi haft það gott um helgina :)

♥

Saturday, March 5, 2011

Random

 Kjóll - Vila / Eyrnalokkar - Accessorize
02.03.11

 Eyrnalokkar - Accessorize
Kjóll - Zara / Hattur - Accessorize
Kaffihús með Maríu

Random myndir frá síðustu dögum. Í kvöld erum við stelpurnar með matarboð og svo ætlum við að skella okkur á Gus Gus ball. Gleði gleði!
Eigið góða helgi elskurnar :)

♥

Thursday, March 3, 2011

Tuesday, March 1, 2011

Dsquared² Fall 2011


Elska hvað þessi lína er casual chic, með smá villta vesturs ívafi! Langar í þessa hatta takk.

♥

Monday, February 28, 2011

Help needed!

Ég get hreinlega ekki ákveðið hvað ég á að kaupa mér fyrir peninginn sem ég fékk í afmælisgjöf. Hérna eru nokkrar hugmyndir:

Kron by Kronkron kjóll. Langar einna mest í þennan.
Lita. Orðið soldið þreytt kannski? Samt fallegir.
Bolur/Kjóll frá Friis&Company

Eða að spara og safna uppí eitthvað enn fallegra? Hjálp!!

P.S. Útborgun á morgun! Eitthvað segir mér að kaupbannið mitt fái að fjúka fyrir lítið..

♥

Sunday, February 27, 2011

Dolce & Gabbana Fall 2011

Eftir floppið sem var D&G línan fyrir haustið 2011 (að mínu mati var hún allavega algjört flopp!), þá komu Domenico Dolce og Stefano Gabbana skemmtilega á óvart í dag með haustlínu Dolce & Gabbana 2011. Ég fýlaði ekki allar flíkurnar, enda er það nú sjaldnast þannig að maður geri það, en í heildina var mjög skemmtilegur fýlingur í þessari línu. Soldið áramóta partýs stemmning í þessu með allar þessar stjörnur og pallíettur. En inná milli blönduðu þeir karlmannlegum flíkum og sniðum, sem hafa einmitt verið mikið áberandi á pöllunum núna.

Hvað ég myndi gefa fyrir að eiga Miss Sicily töskuna!
Karlmannlegt og töff
Abbey Lee var æði í velúr dragt
Elska litina og sniðið!
Pallíetturpallíetturpallíettur! Græni kjóllinn er to DIE for!!
Elska þessar pallíettubuxur og loðið á greinilega eftir að koma sterkt inn aftur næsta haust.
Baksviðs. Miss Sicily taskan með grænum pallíettum. Úff fegurð!

♥