Friday, April 29, 2011

Royal Wedding

Kate Middleton leit svo sannarlega út eins og prinsessa í þessum æðislega fallega kjól úr smiðju Sarah Burton. Hann var svo fullkominn á hana, fallegur litur, sýndi hæfilega mikið og granna mittið hennar fékk að njóta sín. 
Pippa Middleton, systir Kate, var einnig glæsileg í Sarah Burton kjól. En mér finnst alls ekki við hæfi að hún hafi klæðst hvítu, finnst að það eigi að halda í þá hefð að aðeins brúðurinn klæðist hvítu.
Margir hafa sett út á Victoriu Beckham fyrir þetta outfit en mér finnst það mjög klassískt og fallegt. Er ég ein um að finnast þessi hattur flottur?
Mér fannst Beatrice æðisleg í Valentino og hatturinn geggjaður! Veit ekki alveg með Vivienne Westwood dressið hennar Eugenie en mér finnst skórnir hennar mjög flottir. 

Horfðuð þið á brúðkaupið?

3 comments:

  1. Hatturinn hennar Viktoriu er mjög töff, þannig þú ert ekki ein um það :)

    -Alda

    ReplyDelete
  2. Sama hvað fólk segir þá fannst mér Victoria glæsileg og kjóllinn bara váá! :)

    ReplyDelete
  3. Systir hennar var nú brúðarmey.. þær klæðast nú yfirleitt hvítu eins og brúðurin.. :)

    ReplyDelete