Thursday, October 4, 2012

Knitted

Peysa - Gina Tricot / Sokkabuxur - H&M / Skór - BikBok

Elskaelskaelska þessa peysu! Hún er extra víð, þykk og svo óendanlega hlý. Fullkomin í haust. Svo elska ég detailin á bakinu, það gerir svo mikið fyrir hana.

Ég er líka soldið skotin í þessum skóm. Var búin að sjá þá inná síðunni hjá BikBok og þegar ég mætti svo í búðina út í Köben að þá biðu þeir þar eftir mér, eitt par eftir í minni stærð. Svo auðvitað fengu þeir að fylgja mér heim.
BikBok er í nýju uppáhaldi hjá mér. Sérstaklega líka þar sem ég fékk svo æðislega þjónustu þar. Ég hefði viljað versla meira þarna bara af því þjónustan var svo frábær. Ég tók líka eftir því hvað þjónustan er yfir höfuð góð í búðunum í Köben. Það er tekið á móti manni með bros á vör, starfsfólkið sýnir manni áhuga og allir kvöddu með að segja 'Have a nice day!'. Íslenskt starfsfólk mætti alveg taka sér þetta til fyrirmyndar, væri gaman að fá svona viðmót í öllum verslunum.

Annars ætla ég bara að eyða þessum kalda degi í kósýheit. Fagna því að vera komin 25 vikur með því að skella mér í nudd og fara svo og hitta nokkrar sætar janúarbumbulínur í kvöld. Aldrei að vita nema að ég baki smá fyrir kvöldið. Hver veit!

Eigið frábæran fimmtudag!

Instagram @ sarahilmars

3 comments:

  1. Haha vá ég á svona peysu líka og ég ELSKA hana. Ég bókstaflega bý í henni.

    Skemmtilegt að skoða bloggið þitt =)
    Kv. frá random lesanda í Köben!

    ReplyDelete
  2. Ég væri nú alveg til í þessa skó! .. og já peysan notalega töff líka!
    xox

    ReplyDelete
  3. Ég elska svona peysur líka. um leið og það kólnar aðeins þá tek ég allar ullarpeysurnar mínar út úr skápnum. Ég hata að vera kalt, svo ég geng oft í peysum.

    ReplyDelete